Um verslunarmannahelgina 2008 ákváðum við að fara með Lilju systur þinni og hennar fjölskyldu til Siglufjarðar á síldarhátíðina. Tengdafjölskylda Lilju átti hús í bænum sem við höfðum afnot af.
Við fórum í bæinn og skemmtum okkur vel. Fórum meðal annars á málverkasýningu Bergþórs Mortens þar sem við keyptum málverk.
Lærði þar þá lexíu að kaupa ekki málverk eftir að hafa drukkið nokkra bjóra.
Á sunnudeginum fékk ég símtal frá Björgólfi Thor Björgólfssyni þar sem hann bauð mér að taka við sem forstjóri Actavis á þriðjudeginum eftir verslunarmannahelgi. Ég hafði hálfan dag til að gera upp hug minn. Allt í einu breyttist verslunarmannahelgin úr partýhelgi í helgi stórra ákvarðana. Við ákváðum að slá til og á þriðjudeginum var tilkynnt um nýja starfið.